Tímakeðjuskipti
Er bílinn þinn með tímakeðju?
Tímakeðjan er einn af lykilþáttum vélarinnar og sér um að samhæfa hreyfingu ventla og stimpla.
Þó hún sé hönnuð til að endast lengi getur slit eða bilun haft alvarlegar afleiðingar ef ekki er brugðist við tímanlega.
Einkenni slitinnar tímakeðju
Ef þú tekur eftir einhverju af eftirfarandi er mikilvægt að láta skoða bílinn:
- Óeðlilegur skrölt- eða málmhljóð frá vél
- Treg gangsetning eða vélin fer illa í gang
- Vélarljós kviknar (Check Engine)
- Óstöðugur gangur eða aflminnkun
Af hverju skiptir tímanleg skoðun máli?
Bilun í tímakeðju getur valdið verulegum vélarskemmdum og miklum viðgerðarkostnaði.
Með reglulegri skoðun og faglegu mati má koma í veg fyrir slíkt og tryggja öruggan akstur.
Þjónustan okkar
Við bjóðum upp á:
Nákvæma greiningu á ástandi tímakeðju
Mat á hvort skipta þurfi um keðju eða íhluti
Fagleg tímakeðjuskipti fyrir flestar tegundir bifreiða
Notkun á gæða varahlutum frá viðurkenndum framleiðendum
