DPF, EGR og AdBlue viðgerðir
Viðgerðir og lausnir fyrir DPF, EGR og AdBlue kerfi, auk forritunar og aflaukningar á flestum gerðum bíla.

Er DPF-ljósið komið á, missir bíllinn afl eða er AdBlue-kerfið með vesen? Við hjá Bílvogi sjáum um viðgerðir á DPF, EGR og AdBlue kerfum og finnum út hvað er að áður en nokkuð er gert.
Við bjóðum líka forritun og stillingar á vélartölvu, ásamt aflaukningu á flestum gerðum bíla. Valkostirnir fara eftir bílgerð og notkun, svo við förum yfir þá með þér áður en viðgerð hefst.
Hvað gerum við?
- Greiningu á DPF, EGR og AdBlue kerfum
- Hreinsun og viðgerð á DPF-síu
- Hreinsun, viðgerð og endurnýjun á EGR-ventli og kæli
- Viðgerðir á AdBlue kerfi: skynjarar, dæla, hitari og spíssar
- Forritun og stillingar á vélartölvu
- Aflaukningu á flestum gerðum bíla
Algeng einkenni
- Vélarljós eða DPF-ljós logar
- Bíllinn missir afl eða fer í „limp mode“
- Meiri reykur eða aukin eyðsla
- Skilaboð um AdBlue-villu eða að bíllinn fari ekki í gang
- DPF-sían nær ekki að hreinsa sig
Af hverju Bílvogur?
- Reynsla af fjölmörgum bílgerðum
- Greining áður en verkið hefst
- Skýr svör um kostnað og valkosti
Spurt & svarað
Hvað er DPF-sía?
DPF er sótsía í útblásturskerfi dísilbíla. Hún safnar sóti og brennir því af sér. Ef bíllinn er mest keyrður stuttar vegalengdir getur hún stíflast.
Hvað gerir EGR-ventillinn?
Hann leiðir hluta útblástursins aftur inn í vélina til að draga úr mengun. Hann vill safna sóti og festast, sem veldur aflleysi og villuboðum.
Hvað er AdBlue?
AdBlue er vökvi sem er sprautað í útblásturinn hjá nýrri dísilbílum. Kerfið er með tank, dælu, skynjara og hitara og getur bilað, sérstaklega í kulda.
Er hægt að laga kerfin án þess að skipta um alla íhluti?
Oft já. Við byrjum á greiningu og segjum þér hvað er raunhæft og hvað það kostar.
Bjóðið þið aflaukningu og forritun?
Já, á flestum gerðum bíla. Sendu okkur tegund, árgerð og vélargerð, þá segjum við þér hvað er í boði.
Hvað kostar þetta?
Það fer eftir bílgerð og umfangi. Sendu bílnúmer og lýsingu eða bókaðu greiningu, þá færðu verð.
Þarf ég að bóka tíma fyrirfram?
Já, best er að bóka tíma hér á vefnum eða hringja í síma 564-1180. Þá getum við tekið frá tíma fyrir greiningu og viðgerð.
Er hægt að dreifa greiðslum?
Já, hægt er að dreifa greiðslum bæði með Netgíró og Pei. Láttu okkur vita þegar þú bókar eða sækir bílinn.
Bókaðu tíma hjá Bílvogi
Bókaðu tíma á netinu eða hringdu í 564-1180, þá finnum við tíma sem hentar.
