Gilda frá 12. október 2026
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti við A.V bílar ehf., hvort sem greitt er með reiðufé, greiðslukorti eða í reikningsviðskiptum.
1.1. Skilmálar þessir gilda um verkstæðisþjónustu og sölu varahluta í tengslum við hana hjá A.V bílar ehf., kt. 420126-0340, Auðbrekku 17, 200 Kópavogi, bilvogur@bilvogur.is, VSK-nr. 160177 (hér eftir „seljandi“).
1.2. Seljandi er sjálfstæður lögaðili.
1.3. Skilmálarnir teljast samþykktir þegar viðskiptavinur undirritar eða staðfestir verkbeiðni, pantar varahlut eða tekur við vöru eða þjónustu, enda hafi honum verið gert kleift að kynna sér þá. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsíðu seljanda, í afgreiðslu seljanda og fylgja með stofnun reikningsviðskipta.
1.4. Sérstakir skriflegir samningar ganga framar skilmálum þessum að því marki sem þeir víkja frá þeim.
1.5. Þegar viðskiptavinur er neytandi gilda ófrávíkjanleg ákvæði laga nr. 42/2000 um þjónustukaup og laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Ekkert í skilmálum þessum skerðir þann rétt sem neytandi hefur samkvæmt þeim lögum, sbr. 3. gr. beggja laganna.
| Hugtak | Merking í skilmálum þessum |
|---|---|
| Seljandi | A.V bílar ehf. |
| Viðskiptavinur | Hver sá einstaklingur eða lögaðili sem kaupir vöru eða þjónustu af seljanda. |
| Neytandi | Einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu utan atvinnustarfsemi, sbr. 1. gr. laga nr. 42/2000 og 1. gr. laga nr. 48/2003. |
| Fyrirtæki | Viðskiptavinur sem kaupir í atvinnuskyni, þ.m.t. einyrkjar, verktakar og bílaleigur. |
| Verkbeiðni | Skrifleg eða rafræn beiðni viðskiptavinar um verkstæðisþjónustu þar sem lýst er umbeðnu verki. |
| Verðáætlun | Óbindandi mat seljanda á líklegum heildarkostnaði verks. |
| Tilboð | Bindandi fast verð fyrir tiltekið, afmarkað verk. |
| Reikningsviðskipti | Viðskipti þar sem seljandi veitir greiðslufrest á grundvelli samþykktrar umsóknar. |
| Sérpöntun | Varahlutur sem ekki er til á lager og er pantaður sérstaklega vegna verks. |
3.1. Öll verð eru í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt og önnur opinber gjöld nema annað sé sérstaklega tekið fram, sbr. 32. gr. laga nr. 42/2000.
3.2. Vinna á verkstæði er seld samkvæmt gildandi tímagjaldi hverju sinni nema samið hafi verið um fast verð. Gildandi verðskrá er birt í afgreiðslu og á vefsíðu seljanda.
3.3. Verðáætlun er óbindandi. Endanlegt verð má þó ekki fara verulega fram úr verðáætlun, sbr. 29. gr. laga nr. 42/2000. Komi í ljós að verkið verði verulega dýrara mun seljandi hafa samband við viðskiptavin og óska eftir fyrirmælum áður en verki er haldið áfram, sbr. 6. og 31. gr. sömu laga.
3.4. Tilboð er bindandi í 7 daga frá dagsetningu þess nema annað sé tekið fram. Seljanda er þó heimilt að krefjast viðbótargreiðslu hafi verð hækkað vegna aðstæðna sem hann gat ekki séð fyrir, sbr. 30. gr. laga nr. 42/2000, enda tilkynni hann viðskiptavini um það án tafar.
3.5. Bilanagreining og skoðun sem viðskiptavinur óskar eftir í því skyni að meta umfang eða kostnað verks er gjaldskyld samkvæmt verðskrá, sbr. 33. gr. laga nr. 42/2000, jafnvel þótt ekki verði af frekari viðgerð.
3.6. Hafi ekki verið samið um verð á viðskiptavinur rétt á sundurliðuðum reikningi sem sýnir vinnustundir, varahluti og annan kostnað, sbr. 34. gr. laga nr. 42/2000.
3.7. Verð á varahlutum getur breyst án fyrirvara vegna breytinga á innkaupsverði, gengi eða flutningskostnaði.
3.8. Seljandi áskilur sér rétt til að leiðrétta augljósar villur í verðmerkingum, tilboðum og reikningum.
4.1. Meginregla. Greiða skal fyrir vöru eða þjónustu við afhendingu nema samið hafi verið um reikningsviðskipti. Seljanda er ekki skylt að afhenda ökutæki eða vöru nema greitt sé samtímis, sbr. gr. 6.13.
4.2. Greiðslumátar. Tekið er við eftirfarandi greiðslum:
| Greiðslumáti | Hvenær greitt | Sérreglur |
|---|---|---|
| Reiðufé | Við afhendingu | Kvittun afhent. Heimilt er að hafna seðlum sem ekki er unnt að sannreyna. Eftir atvikum þarf seljandi að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavini, sbr. ákvæði peningaþvættislaga nr. 140/2018. |
| Debet- og kreditkort | Við afhendingu | Ekkert aukagjald er lagt á kortagreiðslur. |
| Millifærsla | Fyrir afhendingu | Ökutæki eða vara er afhent þegar greiðsla hefur borist á reikning seljanda. |
| Reikningsviðskipti | Á eindaga reiknings | Aðeins fyrir samþykkta viðskiptavini, sbr. gr. 4.5–4.11. |
4.3. Kortagreiðslur. Við greiðslu með korti staðfestir viðskiptavinur að hann hafi heimild til að nota kortið. Endurgreiðsla vegna skila eða leiðréttingar fer fram á sama kort og notað var við kaupin. Komi til endurkröfu (bakfærslu) kortafærslu án réttmætrar ástæðu stofnast krafa seljanda á hendur viðskiptavini að nýju og gilda þá ákvæði 5. kafla.
4.4. Innborgun. Seljanda er heimilt að krefjast innborgunar áður en sérpöntun varahluta er gerð eða stærra verk hafið, allt að 75% af áætluðu verði. Innborgun dregst frá lokareikningi.
Reikningsviðskipti
4.5. Stofnun reikningsviðskipta er háð skriflegri umsókn og samþykki seljanda. Seljandi getur hafnað umsókn án rökstuðnings.
4.6. Með umsókn heimilar viðskiptavinur seljanda að afla upplýsinga um lánshæfi hans hjá viðurkenndri fjárhagsupplýsingastofu. Seljandi ákveður hámarksúttekt (heimild) og getur breytt henni með tilkynningu.
4.7. Viðskiptavinur í reikningsviðskiptum skal tilgreina þá starfsmenn eða aðila sem hafa heimild til úttektar. Úttekt í nafni viðskiptavinar telst gerð með heimild hans nema hann hafi áður tilkynnt seljanda skriflega um annað.
4.8. Reikningar eru gefnir út mánaðarlega. Gjalddagi er útgáfudagur reiknings og eindagi 30 dögum síðar nema um annað sé samið.
4.9. Athugasemdir við reikning skulu berast seljanda skriflega án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum frá móttöku hans. Ella telst reikningurinn samþykktur. Ágreiningur um hluta reiknings frestar ekki greiðslu þess hluta sem óumdeildur er.
4.10. Seðilgjald eða annað gjald fyrir útgáfu og sendingu reiknings er aðeins lagt á fyrirtæki.
4.11. Seljanda er heimilt að loka fyrir frekari úttektir án fyrirvara ef reikningur er í vanskilum, heimild er fullnýtt eða rökstuddur grunur er um verulega versnandi greiðslugetu viðskiptavinar. Þá getur seljandi krafist staðgreiðslu eða tryggingar fyrir frekari viðskiptum.
5.1. Dráttarvextir. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð frá og með gjalddaga til greiðsludags, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Gagnvart neytendum eru dráttarvextir þeir sem Seðlabanki Íslands ákveður skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga. Í viðskiptum milli fyrirtækja eru dráttarvextir grunnur dráttarvaxta að viðbættu átta prósentustiga álagi, sbr. 3. mgr. 6. gr. laganna og lög nr. 8/2015.
5.2. Hafi ekki verið samið um gjalddaga reiknast dráttarvextir þegar mánuður er liðinn frá því að seljandi krafði viðskiptavin sannanlega um greiðslu, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001.
5.3. Innheimtuviðvörun. Eftir gjalddaga sendir seljandi eða innheimtuaðili á hans vegum skriflega innheimtuviðvörun með a.m.k. tíu daga greiðslufresti, sbr. 7. gr. innheimtulaga nr. 95/2008. Í viðskiptum við fyrirtæki er heimilt að víkja frá þessu, sbr. 2. gr. sömu laga.
5.4. Innheimtukostnaður. Verði krafa ekki greidd innan frests skv. gr. 5.3 er seljanda heimilt að fela hana innheimtuaðila. Viðskiptavinur ber þá kostnað af innheimtunni innan þeirra marka sem reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar setur. Gagnvart fyrirtækjum er seljanda auk þess heimilt að krefjast innheimtubóta að fjárhæð 6.700 kr., sbr. 6. gr. laga nr. 8/2015, sem koma til frádráttar öðrum innheimtukostnaði.
5.5. Stöðvun viðskipta. Á meðan krafa er í vanskilum er seljanda heimilt að stöðva frekari afhendingar, hafna nýjum verkbeiðnum eða krefjast staðgreiðslu, sbr. gr. 4.11.
5.6. Ráðstöfun innborgana. Innborganir ganga fyrst upp í innheimtukostnað, þá dráttarvexti og loks höfuðstól elstu kröfu nema skylt sé að lögum að haga ráðstöfun á annan veg.
Móttaka ökutækis og verkbeiðni
6.1. Við móttöku ökutækis er gerð verkbeiðni sem lýsir umbeðnu verki, skráir kílómetrastöðu og sýnilegar skemmdir og tilgreinir símanúmer og netfang viðskiptavinar. Viðskiptavinur staðfestir verkbeiðni með undirskrift eða rafrænt.
6.2. Með verkbeiðni heimilar viðskiptavinur starfsmönnum seljanda að aka ökutækinu í reynsluakstri og til og frá verkstæði, skoðunarstöð eða öðrum þjónustuaðila eftir því sem verkið krefst.
6.3. Viðskiptavinur skal upplýsa um þekktar bilanir, fyrri viðgerðir og sérstaka eiginleika ökutækis sem skipta máli fyrir verkið. Sé ökutæki eða búnaður þess mun verðmætari en seljandi má gera ráð fyrir, eða krefjist meðferð þess sérstakrar varúðar, skal viðskiptavinur tilkynna það sérstaklega, sbr. 27. gr. laga nr. 42/2000.
6.4. Viðskiptavinur skal fjarlægja verðmæti og persónulega muni úr ökutæki fyrir afhendingu. Hafi viðskiptavinur vanrækt upplýsingaskyldu sína um verðmæta muni getur ábyrgð seljanda á þeim takmarkast eða fallið niður, sbr. 27. gr. laga nr. 42/2000.
Framkvæmd verks
6.5. Óhagkvæm viðgerð. Seljandi upplýsir viðskiptavin ef viðgerð telst óhagkvæm miðað við verðgildi ökutækis, eða ef verð verður verulega hærra en viðskiptavinur mátti gera ráð fyrir, og óskar fyrirmæla áður en lengra er haldið, sbr. 6. gr. laga nr. 42/2000. Náist ekki í viðskiptavin innan sanngjarns frests er seljanda heimilt að hætta verki og krefjast greiðslu fyrir það sem unnið hefur verið, sbr. 3. mgr. 6. gr. og 7. gr. sömu laga.
6.6. Viðbótarverk. Komi í ljós við verkið að eðlilegt sé að vinna önnur verk samtímis óskar seljandi fyrirmæla viðskiptavinar. Náist ekki í hann má seljandi aðeins vinna viðbótarverk ef kostnaður er óverulegur, sérstakar ástæður mæla með því eða ekki er unnt að fresta því vegna hættu, sbr. 8. gr. laga nr. 42/2000. Samþykki viðskiptavinar má veita símleiðis, með tölvupósti eða smáskilaboðum og er það skráð á verkbeiðni.
6.7. Varahlutir. Seljandi notar nýja varahluti nema samið sé um notaða eða endurframleidda hluti. Seljanda er heimilt að nota sambærilega varahluti frá öðrum framleiðanda en upprunalegum (OEM) ef þeir uppfylla sömu gæða- og öryggiskröfur, nema viðskiptavinur óski annars.
6.8. Varahlutir frá viðskiptavini. Leggi viðskiptavinur sjálfur til varahluti ber seljandi ekki ábyrgð á göllum í þeim, né á tjóni sem rakið verður til þeirra, nema seljandi hefði átt að ráða frá notkun þeirra. Vinna við að skipta um gallaðan hlut sem viðskiptavinur lagði til er gjaldskyld. Seljanda er heimilt að hafna því að setja í hluti sem hann telur ekki uppfylla öryggiskröfur eða eru að öðru leyti ósamræmanlegir þeim faglegu kröfum sem seljandi gerir til þjónustu sinnar og þeirra vara sem hann selur.
6.9. Gamlir hlutir. Útskiptum hlutum er fargað á viðeigandi hátt nema viðskiptavinur óski þess við móttöku að fá þá afhenta. Hlutir sem skila skal til framleiðanda vegna ábyrgðar eða skilagjalds eru ekki afhentir.
6.10. Verktími. Uppgefinn verktími er áætlun nema sérstaklega sé samið um tiltekinn afhendingardag. Tefjist verk vegna biðar eftir varahlutum eða annarra atvika sem seljandi ræður ekki við tilkynnir hann viðskiptavini það án tafar, sbr. 3. mgr. 20. gr. laga nr. 42/2000.
6.11. Seljandi ber ekki ábyrgð á þjónustu eða vörum 3. aðila. Ef seljandi vísar viðskiptavini á 3. aðila til þjónustu, viðgerðar eða varahlutaviðskipta, ber seljandi á engan hátt ábyrgð á þeim viðskiptum sem eftir atvikum kunna að eiga sér stað á milli viðskiptavinar og 3. aðila.
Vörslur, afhending og ósótt ökutæki
6.11. Ökutæki er í vörslu seljanda á meðan verk stendur yfir. Um ábyrgð seljanda á tjóni á ökutæki á þeim tíma fer eftir 25. og 26. gr. laga nr. 42/2000.
6.12. Seljandi tilkynnir viðskiptavini þegar verki er lokið. Viðskiptavinur skal sækja ökutæki innan 3 virkra daga frá tilkynningu. Eftir það er seljanda heimilt að krefjast geymslugjalds samkvæmt verðskrá, og ber viðskiptavinur áhættu af ökutækinu frá þeim tíma, sbr. 3. mgr. 19. gr., 2. málsl. 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 37. gr. laga nr. 42/2000.
6.13. Ökutæki er afhent gegn greiðslu reiknings eða samkvæmt samþykktum reikningsviðskiptum. Seljanda er heimilt að halda ökutæki þar til greiðsla hefur farið fram eða trygging verið sett fyrir henni.
6.14. Sæki viðskiptavinur ekki ökutæki og hafi seljandi varað hann sannanlega við því til hvaða ráðstafana hann muni grípa, er seljanda heimilt að selja ökutækið á kostnað viðskiptavinar þegar þrír mánuðir eru liðnir frá því að verki lauk, enda fari salan fram á tryggilegan hátt, sbr. 37. og 38. gr. laga nr. 42/2000. Söluandvirði umfram kröfu seljanda og kostnað er endurgreitt viðskiptavini án tafar.
Afpöntun
6.15. Viðskiptavinur getur afpantað verk hvenær sem er, sbr. 35. gr. laga nr. 42/2000. Hann greiðir þá fyrir vinnu sem þegar hefur verið unnin, vinnu sem nauðsynlegt er að ljúka og sérpantaða varahluti sem ekki fást endurgreiddir hjá birgja, sbr. 36. gr. sömu laga.
7.1. Kvörtun vegna galla skal beint skriflega til seljanda, með lýsingu á gallanum og afriti af reikningi. Viðskiptavinur skal gefa seljanda kost á að skoða ökutækið áður en annar aðili bætir úr galla, nema ástæða sé til annars.
7.2. Frestir og helstu réttindi fara eftir því hvort viðskiptavinur er neytandi eða fyrirtæki:
| Verkstæðisþjónusta, þ.m.t. ísettir varahlutir | |
|---|---|
| Neytandi – tilkynning | Innan sanngjarns frests frá því að galli varð eða mátti verða ljós (1. mgr. 17. gr. laga nr. 42/2000) |
| Neytandi – hámarksfrestur | 2 ár frá afhendingu verks (2. mgr. 17. gr. laga nr. 42/2000) |
| Neytandi – úrræði | Úrbætur, afsláttur, riftun, skaðabætur (11.–15. gr. laga nr. 42/2000) |
| Fyrirtæki – tilkynning | Án ástæðulauss dráttar frá því að galli varð eða mátti verða ljós |
| Fyrirtæki – hámarksfrestur | 1 ár frá afhendingu verks |
7.3. Úrbótaréttur seljanda. Tilkynni viðskiptavinur um galla og bjóðist seljandi til að bæta úr honum getur viðskiptavinur ekki krafist afsláttar eða riftunar, enda sé bætt úr innan sanngjarns frests og án kostnaðar eða verulegs óhagræðis fyrir hann, sbr. 16. gr. laga nr. 42/2000.
7.4. Ef ekki reynist um galla að ræða í unnu verki er seljanda heimilt að krefjast greiðslu fyrir bilanagreiningu samkvæmt verðskrá, enda hafi viðskiptavini verið gert það ljóst áður en hún hófst.
7.5. Undanþegið ábyrgð er tjón eða galli sem rakinn verður til eðlilegs slits, rangrar notkunar, vanrækslu á viðhaldi, slyss, breytinga eða viðgerða annarra en seljanda, eða hluta sem viðskiptavinur lagði sjálfur til, sbr. gr. 6.8.
7.6. Viðbótarábyrgð. Seljandi getur veitt sérstaka ábyrgð á tilteknum verkum, t.d. 12 mánaða verkábyrgð. Slík ábyrgð kemur til viðbótar lögbundnum réttindum neytenda en skerðir þau ekki. Ábyrgð framleiðanda fer eftir skilmálum hans.
8.1. Gagnvart fyrirtækjum ber seljandi ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem rekstrarstöðvun, afnotamissi ökutækis, töpuðum hagnaði eða kostnaði við bílaleigubíl. Bótaábyrgð seljanda gagnvart fyrirtækjum takmarkast við fjárhæð þess reiknings sem kvörtun varðar.
8.2. Takmarkanir skv. gr. 8.1 gilda ekki ef tjón verður rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis seljanda eða starfsmanna hans.
8.3. Gagnvart neytendum takmarkast ábyrgð seljanda ekki umfram það sem leiðir af lögum nr. 42/2000 og lögum nr. 48/2003.
8.4. Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem rakið verður til rangra eða ófullnægjandi upplýsinga frá viðskiptavini, sbr. gr. 6.3.
9.1. Seljandi vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem fer fram í tengslum við viðskipti við hann.
9.2. Unnið er með nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer, netfang, fastanúmer og upplýsingar um ökutæki, verkbeiðnir, viðgerðarsögu og viðskiptasögu. Upplýsingarnar eru unnar til að efna samning við viðskiptavin, uppfylla lagaskyldur, svo sem um bókhald og skattskil, og vegna lögmætra hagsmuna seljanda af innheimtu og ábyrgðarmálum.
9.3. Kortagreiðslur eru unnar af færsluhirði. Seljandi geymir ekki full kortanúmer.
9.4. Bókhaldsgögn, þ.m.t. reikningar, eru varðveitt í sjö ár frá lokum reikningsárs í samræmi við lög nr. 145/1994 um bókhald. Öðrum upplýsingum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf.
9.5. Upplýsingum er ekki miðlað til þriðju aðila nema það sé nauðsynlegt vegna viðskiptanna, svo sem til birgja vegna ábyrgðarmála, innheimtuaðila, fjárhagsupplýsingastofu skv. gr. 4.6, eða skylt að lögum.
9.6. Viðskiptavinur á rétt á aðgangi að upplýsingum um sig, leiðréttingu og eftir atvikum eyðingu og getur beint kvörtun til Persónuverndar. Nánari upplýsingar eru í persónuverndarstefnu seljanda á vefsíðu hans.
10.1. Seljandi ber ekki ábyrgð á drætti eða vanefndum sem stafa af atvikum sem hann ræður ekki við og gat ekki með sanngirni séð fyrir, svo sem náttúruhamförum, óveðri, farsóttum, verkföllum, stöðvun flutninga, truflunum á greiðslumiðlun eða skorti á varahlutum hjá framleiðanda.
10.2. Seljandi tilkynnir viðskiptavini án ástæðulauss dráttar um slík atvik og áhrif þeirra á afhendingu, sbr. 3. mgr. 20. gr. laga nr. 42/2000. Standi hindrun lengur en 60 daga getur hvor aðili um sig fallið frá þeim hluta samnings sem óefndur er.
11.1. Seljandi getur breytt skilmálum þessum. Breyttir skilmálar gilda um viðskipti sem stofnað er til eftir birtingu þeirra. Viðskiptavinum í reikningsviðskiptum er tilkynnt um efnislegar breytingar með a.m.k. 30 daga fyrirvara.
11.2. Reynist ákvæði skilmálanna ógilt eða óskuldbindandi hefur það ekki áhrif á gildi annarra ákvæða þeirra.
11.3. Um skilmálana og viðskipti samkvæmt þeim gilda íslensk lög.
11.4. Aðilar skulu leitast við að leysa ágreining með samkomulagi. Kvörtun skal beint skriflega til seljanda, sbr. gr. 7.1.
11.5. Úrskurðaraðili fyrir neytendur. Neytandi getur borið ágreining um kaup á þjónustu eða vöru undir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa samkvæmt lögum nr. 81/2019 um úrskurðaraðila á sviði neytendamála, að fullnægðum skilyrðum nefndarinnar. Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík, netfang kvth@kvth.is, vefsíða island.is/v/kaerunefnd-voru-og-thjonustukaupa.
11.6. Rísi mál vegna skilmála þessara skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Mál á hendur neytanda verður þó ekki höfðað annars staðar en á varnarþingi hans samkvæmt almennum reglum.