Blautreimaskipti

Blautreim gengur í vélarolíu og getur slitnað eða brotnað niður með tímanum.

Þegar blautreim byrjar að gefa sig geta agnir úr reiminni blandast olíunni, stíflað olíusíuupptak og olíurásir og valdið olíuþrýstingsvanda. Ef ekki er brugðist við í tæka tíð getur það leitt til alvarlegs vélarskaða. Rétt olía og reglulegt viðhald skipta því miklu máli í bílum með blautreim.

Einkenni sem geta bent til vandræða í blautreimakerfi

Óeðlilegur gangur, viðvörun um lágan olíuþrýsting, olíuvandamál eða merki um slit í þjónustuskoðun geta bent til þess að skoða þurfi kerfið nánar.

Algengar bíltegundir með blautreim:

Ford með 1.0 EcoBoost vél, t.d. Fiesta, Focus, Puma, EcoSport og sumir Transit, Courier/Transit Connect.
Peugeot með eldri 1.0 og 1.2 PureTech vélar, t.d. 208, 2008 og 308.
Citroën með eldri 1.0 og 1.2 PureTech vélar, t.d. C3, C4 og Berlingo.
Opel með 1.2 PureTech í ákveðnum árgerðum, t.d. Corsa, Crossland og Mokka.