Bílvogur ehf.
Bílvogur ehf. hóf starfsemi
að Auðbrekku 17 Kópavogi, í desember
1986 og hefur verið þar frá upphafi. Formleg
opnun verkstæðisins var 2. maí 1987.
Verkstæðið hefur sérhæft sig í
viðgerðum á bifreiðum frá Heklu
hf. og er Bílvogur með viðurkennt umboðs-
og þjónustuverkstæði fyrir Volkswagen,
Mitsubishi, Skoda og Audi, Bílvogur annast einnig allar
almennar viðgerðir á öðrum tegundum
bifreiða.
Verkstæðið er búið öllum nýjustu
tækjum sem völ er á hverju sinni. Reglulega
sækja starfsmenn viðurkennd námskeið
frá þjónustuaðila.
Verkstæðið er löggilt
endurskoðunarverkstæði.
Bílvogur
er með gæðavottun BGS
|